Við bjóðum upp á snjall hitastýringu Danfoss Ally™ fyrir gólfhita, með uppsetningu á búnaði og forriti til að stjórna hitanum í gegnum Danfoss Ally™ appið. Það er líka hægt að setja upp snjall hitastýringu fyrir ofna.
Við komum á staðinn, förum yfir hvaða búnað þú þarft og setjum allt upp. Þú færð svo aðgang að Danfoss Ally™ til að stjórna með snjalltæki.
Meira um Danfoss Ally™ hér
Í flestum nýlegum íbúðum sem eru með gólfhita kerfi, er nú þegar flest allur búnaður til staðar. Einungis þarf að bæta við snjall pakka. Í þeim tilfellum er kostnaður 69.900 kr. með uppsetningu.
Íbúðir með eldra gólfhitakerfi, gætu þurft frekari útreikninga.
Í stærri eignum sem eru með stór gólfhitakerfi, gæti verið þörf á meiri búnaði. Í þeim tilfellum er gert tilboð í verkið eftir skoðun. Fyrir neðan eru verðdæmi fyrir stærri gólfhita kerfi.